Ađalvalmynd

Who is this crazy ass?

  • Nafn: Andrea Stefánsdóttir
  • Netfang: andreastefans@gmail.com
  • Stađur: Raufarhöfn/Laugar
  • Atvinna: Nemi í Framhaldsskólanum á Laugum
  • Hjúskaparstađa: Í sambandi with my wonderful Lund !
  • Um mig: Hellú.. Ég heiti Andrea (AKA Dreyja, Andrew, Vandrćđa). Ég er 18 ára gömul og er frá Raufarhöfn en bý á heimavist í Framhaldsskólanum á Laugum, ţar sem ég er á 3. ári. Ţađ sem einkennir mig er klofinn persónuleiki, hreinlćtisćđi og óvćntar uppákomur. Ég er međ meistaragráđu í hćgáti og sérhćfi mig í Muffins bakstri;)

GUTEN TAG! -Finally

03. maí 2008 klukkan 14:18

Jæjaaa skoHlæjandi long time no see!

Fréttir fréttir:

Ég er laus við Halo-vestið!!!!! Það var tekið af fyrir sunnan, 22.apríl, og það tók ekki nema um 15 mín.! Þá var ég búin að hafa það í 8 vikur. Ég var ekki svæfð eða deyfð eða neitt, svo að ég var að deyja úr stressi um að það yrði vont, svo að ég skalf eftir að það var búið að taka þetta af. Ótrúlega skrítin tilfinning! Ég gat ekki haldið hausnum uppi sjálf (eins og litlu börnin!), því að ég var ekki búin að hreyfa hálsinn í 2 mánuði. En ég fékk mjúkan kraga og fljótlega var ég farin að halda hausiGlottandi

En ég er komin aftur á Laugar til hinnar fjölskyldu minnar!Koss Það er æði.. Ég kom síðasta sunnudag 27.apríl - fyrir viku semsagt. Og það er bara strax dembt sér í lærdóminn, enda er ég búin að missa úr 2 mánuði. Ég er búin að komast að samkomulagi við alla kennarana um próf og verkefni og svona, svo að ég nái áföngunum. Þetta væri ekki hægt í neinum öðrum skóla en nákvæmlega þessum! Nema ég verð að sleppa fél313, ég næ ekkert að klára hann. Og ég verð þá að læra svoltið mikið í sumar líka, þá ætti ég að ná alveg 18 einingum úr þessu, sem er frábært!

Núna er laugardagur.. leti helgi. Það var frí á fimmtudaginn svo að það fóru býsna margir í helgafrí eftir skóla á miðvikudag og tóku sér "veikindafrí" á föstudeginum til að komast heim og hafa langa helgiGlottandi Ég hefði örugglega gert það líka, fyrir það að ég er bara nýkomin aftur - að heiman. En það er bara næsta VIKA sem er eftir af skólanum og svo bara prófavikan eftir það. Það er svo lítið eftir af þessu.

Það sem er um að vera á næstunni:
 
-Afmælis partý hjá Tinny syss og Jöru á laugardaginn næsta á Ak.!!!! Boðskortin koma fljótlega.
Svo förum við Tinna í fermingu daginn eftir hjá frænda okkar (spurning hvort það verður þynnka í gangi, hehe..)

En ég vildi bara láta vita hvernig staðan væri á mér. Heilsan er mjög góð, ég fer suður núna í næstu viku í tjékk.. þá verður kraginn tekinn alveg og ég fer í einhverja sjúkraþjálfun eftir það. Fun fun fun..

BÆ ELSKURNAR =*

Gleđileg jól!

30. desember 2007 klukkan 16:07
Vildi bara óska öllu mínu fólki gleðilegra jóla
og farsældar á komandi ári - 2008!! Hlæjandi 
Ég sé ykkur skólafólk eftir
áramót en þið hin fáið kveðju eða knús frá mér á áramótunum.. Love you all!
Koss


-Andrea

Jólahreingerningar

12. desember 2007 klukkan 22:35

Jújú, ég var að ljúka við jólahreingerninguna hérna í herb. 111 áður en ég fer HEIMHlæjandií jólafrí! Og ég er búin að vera hnerra á fullu, þetta rik er ekki að fara vel í mig. Sem minnir mig á það að ég ætti kannski að fara drífa mig í ofnæmispróf til að vita fyrir hverju ég er með ofnæmi. Ég fór í þannig próf þegar ég var bara pínu lítil og það voru stungin 16 göt eða eitthvað álíka í puttana á mér en svo þegar við vorum að bíða eftir niðurstöðunum þá ákvað Tinna, mín yndislega ofvirka systir (á sínum yngri árum) að rugla glösunum saman sem við vorum að bíða eftir, þannig að það kom aldrei í ljós fyrir hverju ég var með ofnæmiGlottandiHehe það var alveg æðislegt.

En það fer nú alveg að skella á jólafríið. Núna er prófavika... frábærasta vika ársins!! Allir dragúldnir og heilinn alveg að steikjast á öllum þessum lærdómi og kjaftæði. Mér er ekkert búið að ganga geðveikslega vel í þessum prófum, heldur er ég engan veginn að nenna þessu. Það hefði verið fínt ef prófin hefðu verið í síðustu viku því að ég er komin með svo mikinn skólaleiða núna - EN ég á bara tvö próf eftir, svo er ég komin í jólafrí á föstudaginn..Jeijj. Þá fer ég á Akureyri og geri hin árlegu jólainnkaup. Hvern langar í jólagjöf?? Ég er farin að hlakka ótrúlega til jólanna og allt sem tengist þeim. Það sem mér kvíður mest fyrir eftir áramót er að hún Tinna mín er að fara.. noooooo... Það eina góða sem kemur út úr því er að ég fæ ísskápinn hennar. Hehe, en annars er allt slæmt við það!!! Ég er bara frekar fúl við þig verð ég að segja. Voða góð með þig að skilja litlu systur þína bara eftir, puff. Neinei ástarblóm þetta er bara söknuðurinn að tala
Koss Síðustu helgi tókum við stelpurnar almennilegt stelpudjamm sem var æðislegt í alla staði. Ótrúlegt stuð og sjúkar myndir frá kvöldinu. Ég slapp við það að drekka allar tegundir af áfengi sem til eru í heiminum eins og sumir gerðu, þannig að ég var býsna góð daginn eftir hehe.. takk fyrir þetta stelpur. Við hefðum átt að vera búnar að taka eitt svona kvöld fyrir löngu. En í kvöldmatnum í gær vorum við ekki alveg í stuði fyrir gamlan úldin fisk þannig að ég, Tinna, Sædís og Rán fórum á Sölku á Húsavík og ég sver það við biðum í klukkutíma eftir matnum! Er það eitthvað eðlilegt? OG það var enginn annar þarna. Við hefðum betur átt að hleypa sædísi inn í eldhúsið og húðskamma liðið. Þannig að við vorum ekki komnar til baka fyrr en kl.10 og þá átti eftir að læra undir próf. En guð minn góður, mýsnar á götunni á leiðinni! Þetta var rosalegt.. flestar voru þær nú dauðar eftir að búið var að keyra yfir þær og aðrar að narta í leifarnar.. ögh.. Þetta var hreinlega ROAD KILL-caught on tapeGlottandi

Um daginn var ég að hugsa út í það að ég væri ekkert búin að smitast af neinum pestum sem hafa verið að ganga í vetur og ekkert orðið veik. Og svo rétt þegar ég var búin að sleppa orðinu þá fékk ég hálsbólgu og hita! En jæja, ég missti tvo daga úr skólanum út af því. En svo vikuna eftir... haldiði að ég hafi ekki fengið ógeðslegustu pest sem til er.. ælupest
Gráðugur það var ógeð. Og ég missti einn dag úr skólanum út af því. Ég mátti eiginlega ekki við því. Þá fékk ég þetta bara allt í einum pakka. Skrítið..

Annars er nóg annað búið að gerast. Árshátíðin var auðvitað þarna 30. nóv. (Einar minn átti afmæli þá, var 23 kallinn) en árshátíðin var geggjuð að venju, góður matur og skemmtileg skemmtiatriði. Og svo er bara svo gaman að gera sig fínan og fara eitthvað. Og svo var hérna um daginn dragshow eða dragkeppni þar sem gríðarlega kynþokkafullur herramenn tóku þátt frá öllum vistum og enginn annar(önnur) en Tina leGrand aka Friðgeir, keppti fyrir hönd Fjalls. Og vann að sjálfsögðu!!Glottandi Þetta var allavega ótrúlega fyndið!

Mér þykir leitt að segja frá því að ég fór í bóklega bílprófið sama dag og árshátíðin, við vorum 7 sem tókum prófið og féllum öll. Það var ömurlegt! En prófið sem við tókum var eitthvað tilraunarpróf sem 90% af krökkum falla á. Ég er ekki alveg að fatta þetta. Ég var allavega ótrúlega fúl. En svo fóru nokkrir inn á Akureyri stuttu eftir til að taka prófið aftur og náðu, þannig að þetta er eitthvað gruggugt.

En ég ætlaði bara að koma með smá fréttir og ekki fréttir og koma með nýjan titil.. Yeah you would (Heiðrún) var orðin svoltið lúin.
En hérna er uppáhalds myndbandið mitt þessa dagana. Það hressir mig alltaf við og vonandi ykkur líka. Það er svo steikt. Mér finnst beatbox fiskurinn svo fyndinn:

- THE SALMON DANCE!

 

 

Yeah you would..

20. nóvember 2007 klukkan 20:57

Oj gerist maður eitthvað lélegri í þessu? Eins og Ella benti á þá er ég búin að koma með heilar ÞRJÁR færslur síðan skólinn byrjaði! Hehe.. Ég hélt að þær væru nú fleiriGlottandi En jæja..

Fullt búið að gerast eins og vanalega þegar maður er ekkert búinn að skella neinu hérna inn svona lengi. Og það er hundleiðinlegt að koma með eitthvað gamalt. En svona sem ég man í fljótu bragði þá var

*Skólaferðalag á Laugavatn, löööng keyrsla og ég hata að sitja í bíl (hvað þá 60 manna rútu) en sem betur fer var ekkert ælt nema á bakaleiðinni og maður þarf ekki að hugsa sig tvisvar um hver ælupésinn sé? *HÓST*Símon*. En það var allavega fínasta matareytrunar ferð! Mm-mm..

*Nú.... PALLI í Sjallanum að sjálfsögðu þar síðustu helgi, gjörsamlega stappað! Ekki gott að vera þarna inni en ágætis stemmari sko. Og hún María mín, fallegasta og besta frænka átti afmæli þá helgi (11.nóv) og það var auðvitað partey hjá henni áður en haldið var í Sjallann. Svo hitti ég Betu mína sem maður hittir aaldrei þó að hún sé bara hérna rétt hjá. En hún átti líka afmæli um daginn (6.nóv) til hamingju með það dísirnar mínar! Þá er ég bara eftir.. en nei, ekki fyrr en 26.des vinan! Athugum hvað það muna margir eftir afmælinu mínu núnaGlottandi Það á til að gleymast svona í öllu jóla stússinu.

*Já meira.. Ég er ekki að höndla allan þennan lærdóm nógu vel =/ plús það að það væri ágætt að fara klára bílprófsdæmið af.. Ég er búin með ö2 (ökuskóla 2) svo að ég gæti farið að taka bílprófið á næstunni, allavega bóklega hlutann. En ég vona að fljótlega geti farið að koma ,,Komin með bílpróf!" bloggHlæjandi

Svo fer að styttast í árshátíð, 1.des.! Yee.. Sædís við verðum að fara að finna okkur kjóla!! Það er aðal tilhlökkunarefnið núna. Svo gaman að dressa sig upp og gera sig fínan. Og svo eru vistaratriðin náttúrulega alltaf skemmtilegt. Fjall rústar þessu skoUllandi 
O JÁ! svo er ég búin með dönsku! Ég og Tinna rumpuðum dönskunni af svo að ég er stúdentína í dönsku.. búja! 
En ég ætla hætta þessu. Bara láta vita að ég er ekki alveg dáin, bara næstum.. nei grín! (ojh) P.s. Mig langar í krullurnar mínar aftur!! ömurlega permanettFýldur

Yeah you would.....

                       
                  Drullu tussu fokking fallegar systur! Vorum ekki vissar hvort við áttum að vera sætar eða gerpi. Saklaus

Löng helgi.. eđa vika.

24. október 2007 klukkan 11:38
Goddaginn! Glottandi Nú er maður bara kominn í langt og gott frí. Enginn skóli og enginn lærdómur.. sweetSvalur Ég er búin að fá út úr nokkrum prófum, í íslensku fékk ég 8.4 - sögu 9.4 (fyrir lotuna, fór semsagt ekki í próf) og í þýsku fékk ég 8.9 fyrir lotuna. Þá á ég bara eftir að fá úr ensku og félagsfræði. Og taka próf í stærðfræði.
En í fyrradag, 22. október, átti hann Friðgeir minn afmæli! Til hamingju aftur ljúfurinn =* Og þar sem við Tinna höfðum ekkert að gera þann dag (eins og flesta aðra daga í þessu fríi) þá pökkuðum við inn gjöfinni handa honum um leið og við vöknuðum og bjuggum til þetta fína kortGlottandi Brunuðum svo út í sjoppu þar sem kallinn var að vinna MEÐ gítarinn og tókum afmælissönginn fyrir hann! Hehehe.. þ
etta var svo fyndið, vorum í agalegum galsa. Við tókum að sjálfsögðu nokkra rúnta til að bíða eftir að fólkið færi úr sjoppunni, og jú til að safna í okkur kjark, en svo drifum við okkur þegar Ester og Nilton voru einu eftir í sjoppunni. Þau þurftu því miður að verða vitni að þessu. Það hefði verið ennþá fyndnara hefðum við fundið svona hatta og flautu. En við litum nógu kjánalega út. Þannig að þetta reddaðist. Anyways.. gott að þú varst ánægður með gjöfina.
En hvað er málið með mig og drauma? Mig dreymir á hverri einustu nóttu, hverja vitleysuna á fætur annarri og ég man alltaf hvað mig dreymir. Fyndnasti hingað til var að ég var á ættarmóti hjá ömmu og systkinum hennar - ég hafði aldrei hitt þau. Svo heilsaði ég bara nokkrum systkinum ömmu og allt í lagi með það, nema svo voru öll hin systkinin svört! Og ég skildi ekkert hvað væri í gangi. Svo kom að því að ég hitti langömmu og langafa og haldiði að  þau voru ekki svört líka. Jújú, djöfulsins vitleysa. Þannig að ég nefið á mér og varirnar fara að stækka með aldrinum þá er það nú bara af því að ég er hálfur negri! Í fyrrinótt dreymdi mig að mér hafði verið stolið og í nótt dreymdi mig að ég var rænd í hraðbanka! Veit ekki alveg hvað er í gangi.. Og svo náttúrulega þessi billjón skipti sem mig hefur dreymt að ég sé ólétt. Það hafa örugglega öllum stelpum dreymt það einhverntímann! Ekki satt?
En ég ætla bara hafa þetta nóg í bili. Konukvöldið sem var hér um daginn var geggjað! Tinna er búin að setja myndir inn frá því kvöldi:
http://picasaweb.google.com/tinnastef/KonukvLdOgFleira.

See ya!

Hvađ gengur nú á, góđi minn, gríđarlegt...

12. október 2007 klukkan 10:42

Æji bíddu nú bara. Haha! Bjarni Ómar upp á sitt besta. Þetta ,,ferska" hérna fyrir neðan var gjörsamlega útrunnið. Maður heldur alltaf að maður sé svo upptekinn og hefur ekki tíma fyrir neitt annað. Það er reyndar búið að vera geðveikslega mikið að læra og í gær var ég gjörsamlega búin á því þegar ég skilaði öllum stóru verkefnunum sem ég var búin að vera basla við. EN NÚ er ég komin í helgarfrí, það var frí í skólanum í dag (föstudag) vegna kennaraþings kennara á norðurlandi. Það var ekkert smá nice, því við komum þá bara heim á Ríben í gærkvöldi og gátum sofið út í morgun. Eða ég gat ekkert beint sofið út. Vaknaði kl. 9Óákveðinn Tinna er enn sofandi, bíddu...ég held ég heyri hrotur. DjóókGlottandi En í gærkvöldi var ég að hjálpa til við konukvöld sem verður á barnum hjá Evu á laugardaginn! Þetta verður rosa stuð og mjög flott.
En það er fullt fullt fullt búið að gerast síðan ég bloggaði síðast - eða síðan skólinn byrjaði. Búið að halda diskó og svo var farið í svaðilför í Mývatnssveit og gist, það var geðveikt gaman. Svo um daginn var ,,hinseginn dagur" í skólanum um daginn og freaky hairday! Allt voða skemmtilegt. Við stelpurnar erum væntalega búnar að hafa eitt dekurkvöldKoss Og svo var það auðvitað hin fræga og stórskemmtilega bústaðarferð þar sem Laugakrakkar leigðu bústað í Ytri vík (helgina 21.-23. sept) og það var tær SNILLD. Mikið drukkið, sungið, öskrað, dansað, hlegið.. you get my point. Þetta er allavega ferð sem gleymist seint! Þar sem ég á enga myndavél og enga myndasíðu er hægt að skoða myndir frá þeirri helgi hjá Tinnu: http://picasaweb.google.com/tinnastef/YtriVK2123Sept 
Sædísi: http://picasaweb.google.com/janajons/BStaUr2007 
og Ellu: http://picasaweb.google.com/elinfrimanns/YtriVK2023Sept. Ég fæ ekki nóg af þessum myndum. Og já, svo er ég komin með permanett. Það gengur eitthvað illa að reyna setja mynd hérna inn til að sýna ykkur það. En það verður bara að hafa það.

Næsta vika verður ekkert voðalega spes, því prófin byrja þá en efir þau er heilt vikufrí! Þá verður gert eitthvað... sem ég er ekki búin að ákveða. Fara allavega heim, en svo verður bara að koma í ljós.
En ég er orðin svöngur, ætla fá mér breakfast. Og ég ætla enda þetta á vísu sem við Friddz sömdum í gær. Ég samdi fyrri helminginn og Friðgeir átti að botna:


Fridds fretur góður er,

stóran drjóla dregur á eftir sér,                            

þegar hann í stuðið fer,

stækkar drjólinn og verður býsna sver.


Var þetta ekki svona Friðgeir?Glottandi Hehe.

Er ekki kominn tími á eitt ferskt?

04. september 2007 klukkan 21:41
Júú.. Maður er svo ótrúlega lélegurSkömmustulegur En ég er komin aftur á Laugar!! sweet.. skólinn byrjaður og allt komið í gang. Það er svo ótrúlega gaman að hitta alla aftur. Svo voru að byrja 43 nýjir í skólanum. Mjög mismunadi fólk auðvitað.. hehe. En ég er á herbergi 111 á fjalli núnaGlottandi Stærra og þæginlegra herbergi. Enda þurfti ég að fara og versla eitthvað inn í herbergið svo að það yrði ekki tómlegt. En verið ávallt velkomin í heimsókn! Nú.. það var farið í bókakaup í gær á Akureyri. Ég þurfti að kaupa slatta af bókum, en náði þó að fá nokkrar bækur hjá eldri nemendum svo að ...
En """busavígslan"""" eða "Vígsluathöfn nýnema" er staðin yfir.. skulum eiginlega ekkert tala meira um það. Busarnir fengu allavega engann ógeðsdrykk og þeim var boðið mjög kurteisislega að stökkva í tjörnina EF þeir vildu. Allavega var hún með allt öðru sniði en hefur verið síðustu ár.
Ömm... sumarið var spes... ég vann ótrúlega mikið. Enda er maður rich bitch núna skohh, ekki slæmtGlottandi múhahah. En það var nú lyft sér aðeins upp. Fór í útileigu í Ásbyrgi í júlí með Einari, Petru&Ívari, Heiðu&Bjössa og Jakob&Sigrúnu. Það var geðveikt stuð!! Kominn prakkari i suma og svona. Haha! Svo fór ég á Mærudaga á Húsavík. Skemmti mér mjög vel þar. Og svo var það verslunarmannahelgin. Það var rosalegt ferðalag (fannst mér). Fór frá Raufarhöfn til Húsavíkur og þaðan til Rvk. ÖRLÍTIL vegalengd. Og ég þoli ekki að sitja í bíl. Er engu skárri en litlu krakkarnir.. Are we there yet? En svo fórum við á Akureyri á sunnudeginum og ég fór svo heim á þriðjudeginum og BEINT í vinnu takk fyrir. En þegar ég lít tilbaka þá man ég eftir þreyttasta deginum mínum í sumar. Hann var í eitthvað í kringum lok júní þegar ég var búin að vera óvenju mikið á hótelinu plús frystihúsinu. Í tveimur vinnum semsagt. Ég var þreytt og illt allsstaðar. Mér var illt í tönnunum af þreytuHissa Það er bara freaky.. En ég hafði manninn minn til að hjúkra mér ;* breiddi yfir mig og eldaði handa mér og svona, því ég hafði ekki orku í neitt.
En svo man ég líka eftir erfiðasta deginum í sumar, það var á hótelinu og það var brjál að gera og við bara 3 í eldhúsinu. Svo að ég var að gera meira og minna allt.
En jæja, þetta er komið ágætt. Kvitt my beibís. Hlæjandi
*Videokvöld á morgun allir*

P.s. ÞAÐ VAR KÓNGULÓ AÐ FARA BORÐA EPLIÐ MITT UM DAGINNFýldur

Fokkfeis!

11. júlí 2007 klukkan 22:55
HahaGlottandi Ojj það er fáránlega lítið í fréttum! Ef ég ætti að setja þetta niður í punkta myndi það líta svona út:
*vinna
*vinna
*vinna... þið skiljið.
En ég er sem sagt búin að vera vinna síðan skólinn var búinn í maí. Í frystihúsinu á morgnanna, eða frá 7 til 3 á daginn. Og svo á hótelinu á kvöldin. Þannig að þetta eru góðir tólf til sextán tíma vinnudagar. En svo var ég hótelstýra í eina viku núna í júní, á meðan hótelstjórinn fór suður. Svo að  ég sá ein um hótelið þann tíma. Ekki slæmt ha?
  Kreisí að gera sko! Og til að toppa það, var ég ein heima allan júní og Einar alltaf á sjó og einhversstaðar í burtu, þannig að maður var orðinn svo einhverfur að  það er ekki eðlilegtHissa
En núna er frí í frystihúsinu svo ég er bara að vinna á hótelinu, sem er ágætt. EN ég var býsna ánægð þegar ég fékk launaseðlana.
Þá var þetta allt þess virði.. svitinn, einmannleikinn og þreytan! Svo er það einn og hálfur mánuður sem maður á eftir til að vinna, þangað til skólinn byrjar aftur. Mér er strax farið að hlakka til að hitta alla!Hlæjandi híhí! En ég komst loksins eitthvað burtu um helgina síðustu. Var í fríi í vinnunni og fór inn á Akureyri og hitti alla famelíuna, fór í klippingu&litun loksins og hitti Einar minn!  Sem var by the way að kaupa sér nýjan bíl! Finally! Ég var komin með nóg af slóðinni www.bilasolur.is og allri dellunni, hehe. En kallinn fór suður í dag og náði í nýja kaggann. Þið verðið að spurja hann hvernig tegund hann er og allt það, ég veit bara hvernig hann er á litinn..HA!.. ekki mikill bílasérfræðingur. En hann er víst voða fínnGlottandi Og svo kom Tinna með tilbaka því hún var í nokkurra daga fríi.. var voða fínt að fá elskuna:* Og svo næstu helgi er ættarmót hjá mér, verður einhversstaðar rétt hjá Dalvík. En ásbyrgismótið er á sama tíma þannig að við ætlum að fara þangað fyrst og gista, og fara svo á ættarmótið á laugardeginum. Og jú svo er annað ættarmót helgina eftir, 20. júlí. Það er hjaltabakkaættin, en það verður bara haldið hér á Raufinni. Og svo var ég bara að fá að vita í dag að ég fæ FRÍ um versló! Jibbíí.. svo að maður getur þá farið eitthvað og hitt fólkHlæjandi En svo er Björg syss að koma á morgun! Hlakka geggjað til að sjá ástina=) Mmm..Óákveðinn ég held að það sé ekkert meira sem ég get sagt. Ég ætla ekkert að vera kvarta yfir því að það eru ALLIR búnir að fara út, eða eru að fara út í sumar! Er búin að væla nóg undan því. En ég meina það, það eru allir að fara! -Nema ég. Allar mínar helstu vinkonur og margir að fara tvisvar eða þrisvar! Nefni engin nöfn (*Tinna* hóst*) he he.
 Ég er búin að vera ótrúlega dúleg að skella einu hérna inn loksins! Ég gat alveg eins verið að horfa á "Medium" á stöð 2 eða legið og vælt og vorkennt mér út af vöðvabólgunni sem ég er með. En svona er lífið mitt sem sagt búið að vera og verður eitthvað svipað  áfram. Svo að verið nú elskuleg og kvittið hjá mér
 Love & kisses

Aaaa!!....

19. maí 2007 klukkan 19:24

Öskrandi NEI! Loksins þegar maður nennir að blogga, strokast allt út! Ég nenni sko ekki að skrifa þetta allt upp aftur. Þannig að þið fáið bara eitt stutt. En það sem ég ætlaði aðallega að segja er að ég er komin heim á Raufarhöfn. Kom í gær með alla búslóðina og tróð í herbergið mitt hérna sem er ögn minna en herbergið á Laugum, hehe.. þannig að það er svoltið þröngt. En þá er bara um að gera að fara hreyfa sig í sumar og grenna sig svo að maður komist fyrir. Hehe.. En ég er semsagt búin í öllum 7 prófunum sem ég fór í og er búin í bakinu!  En ég er að fara í mataboð til Stínu&Hödda á eftir, svo að ég fæ að skelli mér bara í pottinn hjá þeimGlottandi En ég verð að vinna hérna heima í sumar í frystihúsinu og á hótelinu.. vinna vinna bara og fá money. Einar verður að á sjó á Húsavík í allt sumar þannig að það verður smá söknuður í gangi :/ En maður harkar það af sér! Ég var nú búin að skrifa hérna marga skemmtilega hluti um hvað er búið að vera á döfinni undanfarinn mánuð. En bara nenni ómögulega ekki að skrifa það aftur. Svo að ég ætla bara að enda þetta á mynd af okkur hjúunum sem Örlygur Hnefill tók af okkur, aðallega í gríni. Einar er með í vörinni og svona á myndinni, heheGlottandi Og svo blogga ég nú eitthvað í sumar til að segja ykkur hvað ég afrekaði mikið í frystihúsinu - hvað ég plokkaði marga hringorma á mínútu og svona... nice. Haha!
En ég er farin í tjúllaUllandi
  

Tell me something good...

17. apríl 2007 klukkan 22:00

Hæhæ! Landsmenn nær og fjær. Óákveðinn Ég held að það sé kominn bloggtími, ég er jú ekki lengur í páskafríi. Þvert á móti, því skólinn er byrjaður aftur á fullt og allt að gerast.. Nei ég segi nú bara svona. En það er kominn þriðjudagur. Um helgina var auðvitað söngvakeppnin á Ak, mjög gaman á henni. Nema það að við sátum alveg efst í stúkunni og það var alveg steikjandi hiti þarna, það voru svo margir. Svo var auðvitað eitthvað lið að reykja þarna fyrir aftan okkur allan tímann.. ógeðsleg reykingarstybba. Svo var ball eftir keppnina, og það var nú meira ævintýrið...... Við biðum eftir leigubíl í svona einn og hálfan tíma!! til að komast á ballið. Svo þegar við loksins komust á ballið fattaði ég að veskið mitt væri opið og síminn horfinn, ég alveg fooookk.. Hann gat hafa verið hvar sem er sko, og við leituðum og leituðum út um allt gólf ég var svo viss um það væri búið að traðka á honum, greyinu. Svo að allt ballið fór í að leita að helvítis símanum, og auðvitað fundum við hann í bílnum hans Einars daginn eftir, þá hafði hann runnið úr veskinu!!.. ohh. Þannig að kvöldið var eiginlega ónýtt og við fórum bara heim að sofa. Hehe.. En yfir í annað. Í hádeginu í dag kom fólk í skólann að kynna samfylkinguna.. það var voða stuð, hehe. Svo á miðvikudaginn (á morgun) er síðasti vetrardagur og það verða tónleikar og eitthvað fleira í Laugabæ. OG á laugardaginn er Einar að halda Pink floyd sýningu á Bauknum, það verður örugglega geggjað flottBrosandi og svo er ball á eftir. En á sunnudaginn fer ég í fermingu hjá frænda mínum á Akureyri. Þá er ég búin að fara í tvær fermingar. Held að þær verði ekki fleiri sem ég fer í :) Í gær var síðasta snytinámskeiðið. Við fengum allar litun og plokkun hjá þeim, voða fínar. Og já, ástæðan fyrir titlinum hér að ofan er að Petra lánaði mér ,,Happy feet" mörgæsa myndina, og þetta er lag úr henni sem ég er búin að vera með á heilanum. Mér finnst þetta krúttleg mynd. Syngjandi mörgæsir, hvað er krúttlegra?

En heyrirði elskurnar.. Ég ætla bara að hafa þetta nóg í bili og sendi á ykkur sumarkveðju, þar sem sumardagurinn fyrsti á fimmtudaginn!

Myspace

www.myspace.com/andreastefans

Auglýsing

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur